Þegar talað er um rannsóknarlögreglumenn og störf þeirra dettur fólki oftast í hug alvarleg ofbeldismál, fíkniefnamál eða fjársvikamál. Þessi frásögn sýnir vel að rannsóknir umferðarslysa geta ekki síður verið flóknar og umfangsmiklar. Það sem stendur upp úr í þessu máli er hversu nauðsynlegt er að vanda til verka á vettvangi umferðaróhapps. Nöfnum manna hefur verið breytt en það skal tekið fram að þótt aðalpersónurnar séu kallaðar íslenskum nöfnum eru þær af erlendum uppruna.